Síðustu klukkutímarnir í USA
Þá er þessi dvöl mín í Bandaríkjunum nánast búin. Flugið mitt fer, ef það er á áætlun, eftir 5 tíma þannig að það er ekki mikill tími eftir. Verð að viðurkenna að þetta leið mun hraðar en ég reiknað með.
En þessir dagar hér í New York eru búnir að vera frábærir. Ég mæli hiklaust með því að fólk skelli sér hingað næst þegar það ætlar að fara til útlanda, þetta er mögnuð borg. Þessi árstími er líka alveg frábær ef maður ætlar að skoða sig eitthvað um þar sem það er ekki kalt en heldur ekki of heitt. Það er víst ekkert spes að vera hérna í geðveikum hita í ágúst auk þess sem borgin er full af túristum á þeim tíma og þar með bölvað vesen að skoða öll þessi helstu túrista attractions. Við vorum alveg rosalega heppnir með veður en það er búið að vera um 20 gráðu hiti hérna allan tíman.
En ég ætla að halda áfram að pakka. Later
Óskar

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home