Bifröst

föstudagur, mars 16, 2007

Springbrake.

Þá er maður kominn í springbrake. Magnað.

Ætla samt að byrja á því að tala um annað. Ég skellti mér nefnilega aftur á NBA leik á miðvikudaginn. Ég fór með frönskum félaga mínum, reyndar ekki þeim sama og síðast, og við ákváðum að gera þetta almennilega í þetta skiptið og keyptum okkur $90 miða. Við sáum ekki eftir því, þessi sæti voru geðveik. Memphis voru að spila við Cleveland sem þýðir að LeBron var á svæðinu. Það var alveg magnað að sjá hann, hann er rosalegur. Hann skorað 15 stig í 3. leikhluta og endaði með 29, þó hann spilaði ekki neitt í 4. Ég var reyndar soldið fúll yfir því en þetta slapp.

En já, ég er kominn í springbrake. Hvað ég ætla að gera í fríinu er reyndar ekki komið alveg á hreint nema fyrir fyrstu 5 dagana.

Á eftir fer ég til Little Rock með Kyle félaga mínum og við ætlum aðeins að kíkja á djammið þar með einhverjum félögum hans þaðan. Á laugardaginn ætlum við síðan heim til hans til Tulsa og vera þar í chillinu í nokkra daga. Síðan erum við að spá í að taka smá roadtrip þó það sé reyndar ekki komið alveg á hreint. Einhverjir vinir hans eru að leigja hús á Florida og við erum jafnvel að spá í að skella okkur þangað. Það er reyndar djöfulsins keyrsla þangað, eitthvað um 15-17 tímar, þannig að við ætlum nú að sjá til með það. En djöfull væri það nú samt gaman kíkja aðeins á ströndina.


En ég ætla að ná í fötin í þukarann. Later

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Haha...var að öppdeita mig á blogginu þínu, og get ekki hætt að brosa út í annað eftir lýsinguna á frönskum strákum í molli. Láttekki svona, þú ert einn af þeim. Veit það hef séð það. Þú ert búðaóður.
Klemklem
Solla

6:16 PM

 
Anonymous Oskar said...

Hehe. Verd nu ad vidurkenna ad akvedin budarferd sem eg for einu sinni i a Islandi kom upp i hugan tegar eg var ad skrifa tetta um Frakkana. Eg er ekki fra tvi ad tu hafir komid vid sogu i henni...:)

9:32 PM

 

Sendu inn athugasemd

<< Home