Boston
Ég er kominn heim frá Boston. Boston er frábær borg, eða alla veganna það sem ég sá af henni og sennilega svona sirka 3986 sinnum betri/skemmtilegri/svalari en Jonesboro. Það var reyndar alveg geðveikur kuldi þarna og allt í klaka. Frekar furðulegt að sjá þetta, það var allt í klakabrynju.
En þetta var alveg frábær tími í Boston og sennilega ein besta helgi sem ég hef upplifað. Ég kíkti á Mumma á sunnudeginum og varð þar með annar Íslendingurinn til þess að koma í heimsókn til hans. Sá fyrsti var Hafrún Pálsdóttir nokkrum dögum fyrr en ég útskýri það seinna.... Ferðalagið til og frá Boston var reyndar algjört hell og sennilega það ömurlegasta sem ég hef farið í en samt vel þess virði. Ferðalagssagan er annars efni í annað og mun lengra blogg sem ég ætla að skrifa seinna.
En ég er farinn að læra. Þarf að fara í próf á eftir og á morgun sem gilda 20% af lokaeinkunn. Get ekki sagt að ég hafi lært mikið um helgina.......
Later
Óskar

2 Comments:
Mér finnst að þú eigir að minnast á mig í blogginu þínu, ég meina þótt að ég sé í Japan þá er ég ekki hrfin af landakortinu.
Ég meina, usssssssss.
Ps, þú færð ekki páskaegg frá mér!!
5:37 AM
Haha. Ég skal minnast á þig við tækifæri Einar minn, ekki málið
2:32 AM
Sendu inn athugasemd
<< Home