Daginn
Fyrir þá sem ekki vita þá er ég kominn heim á Íslandið. Reyndar eru alveg rúmar 4 vikur síðan þannig að ég er nú ekkert nýkominn.
Ég byrjaði ég á því að fara upp á Bifröst og er ég búinn að klára tvo kúrsa síðan ég kom heim. Nei reyndar er það bölvuð lýgi að ég hafi byrjað á því að fara í skólan. Ég byrjaði auðvitað á því að fara í sleik við Hafrúnu en svo fór ég í skólan. Rétt skal vera rétt. Ég er hinsvegar ekki upp á Bifröst núna þar sem ég ákvað að taka ekki næstu 2 kúrsa. Ég þarf ekki að taka alla kúrsana í sumar þar sem ég á svo lítið eftir og ákvað því að vera bara í fríi næstu 4 vikur. Svo einstaklega skemmtilega vill til að hún Hafrún er líka í fríi og við ætlum að brasa eitthvað saman og hafa það gott þessar 4 vikur. Og auðvitað fara helling í sleik. Mæli með að fólk fari mikið í sleik, það er hressandi.
Þessa stundina er ég staddur í Grindavík í ógeðis roki og rigningu. Það var ekki um annað að ræða en að fara hingað um helgina þar sem að hinn sívinsæli sjómannadagur var í gær sem þýðir að allir missa sig í endalausa gleði. Alla vegana í Grindavík. Það var semsagt rosa djamm hérna á laugardagin sem var bara nokkuð gaman. Það skemmdi ekki fyrir að Gunni skellti sér til Grindavíkur í tilefni dagsins og kíkti á ballið með kærustunni. Það var einstaklega frábært og varð einnig til þess að ég þurftir ekki að hanga í pilsinu, ég meina kjólnum, hjá Hafrúnu allt kvöldið. Takk fyrir það Gunni, þú ert life saver.
Annars er ég bara nokkuð kátur. Ég er að spá í að fara hringinn í kringum landið í fríinu sem ég hef ekki gert síðan ég var sirka 10 ára. Það verður án efa hressandi. Síðan ætla ég líka að nota tíman og reyna að finna íbúð fyrir mig og Matta næsta vetur í borginn og svo væri ekki verra ef ég mundi líka redda mér vinnu í leiðinni. Nóg að gera þó maður sé í fríi.
En ég er farinn í sleik.
Óskar
